Einstaklega fallegar íbúðir við hinn glæsilega Alhama golfvöll í Murcia héraði.
Íbúðin sem um ræðir er á þriðju hæð, 69,9m2 að stærð með 2 svefnherbergjum með innbyggðum skápum og 2 baðherbergjum. Bjart og rúmgott alrými með fullbúnu eldhúsi með gæða heimilistækjum og stofu. Einnig fylgir sér bílastæði með hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla og aðgangur að glæsilegum sameiginlegum garði með sundlaug og grænum svæðum með bekkjum þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar sem skín í meira en 300 daga á ári.
Svæðið í kring er einstaklega fagurt og telst Alhama golfvöllurinn vera einn af bestu golfvöllum á Spáni en hann er hannaður af hinum heimsfræga Jack Nicklaus og er í svokölluðum Amerískum stíl og auk golfíþróttarinnar býður staðurinn einnig upp á líkamsræktarstöð, tennisvelli og padel velli.
Á svæðinu og í næsta nágreni eru svo ótal veitingastaðir og verslanir og aðeins tekur um 30 mínútur keyra niður á strönd. Stutt er svo að heimsækja hinar sögufrægu stórborgir Murcia og Cartagena.
Costa Cálida er kjörinn staður til að njóta einstakrar paradísar með öllum þeim menningar- og náttúruauð sem Murcia-héraðið hefur upp á að bjóða. Það er líka heimsklassa paradís fyrir íþróttaunnendur: Sjóíþróttir eða óendanlegt úrval af afþreyingu eins og sund, siglingar eða vatnsskíði, sem og landíþróttir, með valkosti sem eru allt frá tennis til gönguferða eða golfs.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa glæsilegu eign.
Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar!